22maí

Leyfileg nöfn..tillögur ;)

Ef þú eignast strák þá máttu skíra hann:

Freyviður Gnurr
Gottsveinn Austri
Játgeir Beinir
Kaprasíus Bjarg
Kort Knörr
Lambert
Otkell Loðmfjörð
Mýrkjartan
Þjálfi Yrkill
Úranus Úddi

Ef þú eignast stelpu þá máttu skíra hana:

Dýrley Brimrún
Efemía Dúfa
Droplaug Fróðný
Gauja Fura
Friðsemd Hvönn
Járnbrá Læla
Lárensína Kría
Messíana Rögn
Magnúsína
Lúsinda Gefn
Listalín
Gissunn

Hvað finnst ykkur flottast ? :P

http://www.rettarheimild.is/mannanofn
22. maí 2008 klukkan 15:32
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
3 athugasemdir
21maí

Tenerife :):)

2 "blogg" á stuttum tíma... hvað er að gerast!?

Núna er ég nefnilega með frétt! Við Bjarni erum búin að kaupa miða til Tenerife!! :D
Við förum 30 sept og komum heim 14 október...alveg eins og suðusúkkulaðibitakökur!

Ég ætla að reyna að sleikja sólina á 7 hæðinni á hótelinu sem við verðum á:D ég hlakka svo tiiiil !!
21. maí 2008 klukkan 17:43
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
Engin athugasemd
19maí

Kanínu fyllibitta

Eins og sjá má hér var ég "fulli gaurinn" um helgina... þetta var samt snemma um kvöldið þannig að þið getið lagt 1+1 saman og giskað á hvernig ég var eftir miðnætti.. http://hallbera.blog.is/blog/hallbera/video/4299/

Kv. Kanínan
19. maí 2008 klukkan 15:22
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
1 athugasemd
29apríl

smá færsla

Jæja nú er ég sjálf orðin þreytt að sjá þessa gömlu leiðinlegu færslu hérna fyrir neðan, kominn tími til að skella smá bloggi inn.

Ég er byrjuð í ræktinni, loksins! eftir 2 ára pásu. Og það er alveg geðveikt að vera búin að hreyfa sig smá, losna vonandi við vömbina fyrir sumarið. Markmiðinu mínu á að vera náð þegar mamma og pabbi koma heim í brúðkaupið til Þráins og Röggu í lok júní..Og það er að vera komin niðrí sömu þyngd og ég var þegar ég byrjaði hérna í Smáralindinni, það gengur bara ágætlega. Eitt kíló farið eins og er. Mikil vinna framundan :D
Eitt inni í þessu markmiði er að grennast það mikið að ég komist í bikiníið mitt svo ég geti skellt mér í sund alltaf eftir ræktina (þetta er allt á einum stað og ég fæ "frítt" í sund ef ég á kort í ræktina þarna), ég kemst í brókina en ekki í toppinn...
Svo er ég bara alltaf í fríi þessa dagana, veit ekki alveg hvernig launaseðillinn verður í júní Þögull sem gröfin en þetta er voða næs, líka þar sem veðrið er búið að vera alveg geðveikt Koss
Var í 2 daga í fríi í síðustu viku, þriðjudag og sumardaginn fyrsta. Laugardag og Sunnudag, og svo fer ég í frí á fimmtudaginn og verð í 4 daga. Vinnan er að fara í bústað hjá Apavanti á föstudaginn og fólk úr hinum Símabúðunum koma bara að vinna fyrir okkur í staðinn :)

Það er alveg endalaust vinnudjamm á næstunni, á morgun er djamm á Apótekinu(frí á fimmtudaginn), Sumó um helgina. Paintball, Grill..alveg endalaust, næstum því hverja helgi.

Svo er bara eiginlega ekkert meira að frétta...blogga næst eftir sumarið kannski ;)
tnús á ykkur sem lesa

29. apríl 2008 klukkan 13:55
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
4 athugasemdir
10febrúar

Stelpurassgat :)

Hún er svo töff!!

Algjör bomba ;)

http://www.youtube.com/watch?v=CnbUSeXjoSs

hihihihihahaha!

10. febrúar 2008 klukkan 17:16
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
1 athugasemd
07febrúar

Burt með þig snjór!

Jæja núna er ég komin með ógeð af þessum snjó sem ætlar ekki að hætta að vera hérna! Það er eins gott að sumarið verði gott fyrst veturinn er svona.
Það er búið að vera svo kallt að fáir komast hjá því að verða veikir.!

Ég var veik í viku, með hita, beinverki, dúndrandi höfuðverk, hálsbólgu...

En núna er ég góð :) Mætt í vinnuna á ný!

Pabbi var heima um helgina, voða gaman að fá hann heim í fyrsta skipti í eitt og hálft ár! Fyrir utan hvað ég var lasin á meðan hann var hérna. Þorrablót hjá Ævari og Helgu á föstudeginum og svo kíkti pabbi í heimsókn til mín í Heimalindina á laugardeginum. Og við fórum í bíó á Brúðgumann, 3ja skiptið sem ég fór á þessa mynd:/ hún er svo góð!

Á laugardagskvöldið gerði ég tilraun til að fara á Benny Benassi með Söru og Völu, var bara á bíl og alveg sprungin í augunum með hausverk og svona gaman.! Kíkti aðeins á Broadway og þar voru ekkert nema hoppandi e-pillur þannig að við Vala stungum af. Sara týndist með systur sinni en hún fór svo líka seinna. Við fórum ss. allar áður en kauðinn mætti á svæðið.. Það kenndi okkur Völu að við ætlum aldrei að fara á DJ aftur(annað skiptið af ekki svo mikið fleirum, sem við stingum af áður en DJinn kemur).


07. febrúar 2008 klukkan 11:54
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
Engin athugasemd
25desember

Gleðileg jól =)

Sæl öll stór og smá. Gleðileg jól! =)
jólakortið frá okkur systkinunum getiði séð hér www.elfyourself.com/?id=1773411952 Það sést að Einar var búin að æfa mest fyrir þetta jólakort þar sem hann dansar lang flottast (2 til vinstri)

Ég hef það æðislegt hérna í Svíþjóð! ég er ekki búin að þurfta að vakna eftir vekjarklukku í 3 daga! Kláraði að kaupa gjafirnar í fríhöfninni, þær sem ég átti eftir að kaupa þannig að ég er búin að liggja í leti síðan ég kom, skrapp reyndar í eina búð í gær með Davíð, mig vantaði belti fyrir jólakjólinn(sem ég gat svo ekki notað því það þrýsti svo á vömbina eftir matinnÖskrandi) Davíð keypti síðustu gjöfina, svo lokaði á okkur kl 2 sem var fínt..

Ég fékk æðislegar gjafir. Skartgripaskrín, hring, skartgripatré, Jack Johnsson disk, krem, bók, teiknibók og blíanta(verið að ýja að mér að fara í skóla), föt, pening, bestu hárvörur sem til eru, veski, geisladisk.......


Það er kominn matur. afgangur síðan í gær:) mmmmm...
komnar myndir inn á facebook:) aðeins fyrir ykkur facebook fólk

Knús á ykkur

25. desember 2007 klukkan 12:35
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
1 athugasemd
17desember

Góð byrjun á mánudegi..

Svona á vikan ekki að byrja.. bara leiðinlegir viðskiptavinir búnir að koma inn í búðinaÖskrandi Mér finnst að fólk ætti ekki að vera svona grumpy viku fyrir jól...
Helgin var fín..brjálað að gera í Smáralind og ég kláraði næstum því jólainnkaupin, restina geri ég bara í fríhöfninni. Sígó handa pabba og m&m handa mömmu :P
Ég fer út á laugardaginn, hlakka pínu til :) þá er ég bara komin í jólafrí til 3janúar!
Bjarni fer svo til Austurríkis 5 jan og verður í alveg 10 daga, þá verð ég bara grasekkja á meðan..

17. desember 2007 klukkan 12:03
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
Engin athugasemd
22nóvember

Jólin koma og nýtt rúm! =)

Loksins loksins loksins!!.. er ég búin að fjárfesta í góðu rúmi!! :D
Við Bjarni fórum í rúmabúð í dag eftir of margar svefnlitlar og óþægilegar nætur þar sem hann á rúm frá 1700 og súrkál, með holu í miðjunni. Það er orðinn vani hjá okkur að snúa bak í bak áður en við lokum augunum til þess að stiðja hvort annað svo að við rúllum ekki ofaní holuna.
Við fáum það á miðvikudaginn, þá höfum við tíma til að ákveða hvoru megin við eigum að sofa. Ég er mikið að spá í að leyfa Bjarna að ráða þar sem þetta er nú hans herbergi. En þá verður hann líka að velja hægra megin, ef ekki þá ætla ég að fá að ráða.Koss
Það er sitthvor dýnan. Ein fyrir mig og ein fyrir hann, mín er mýkri afþví að ég er ekki svona feit eins og Bjarni............dhjóóók. Eins og stelpan sagði "Þetta fer ekki eftir þyngd, þið gætuð alveg bætt á ykkur 20-30 kílóum" jámm, YES!
Ég fékk líka að kaupa ný rúmföt með smá bleiku í:)

Bjarni varð kjaftstopp, sem ég tók reyndar ekki eftir fyrr en hann sagði mér það þegar við vorum búin að splæsa og komin út. Hann sagði að stelpan hafi verið svo dónaleg. "Ég myndi vilja sjá ykkur í Latex" Hann reyndar vissi hvað hún var að meina því við vorum að spá í Latex efnuðu rúmi, (sem er samt alls ekki eins og Páls Óskars latex). En það hefur bara aldrei neinn sagt annað eins við hann. Allavega enginn ókunnugur.

Og ég er byrjuð að hlusta á jólalög! í hófi samt...
Það er líka alveg að koma desember. Svo erum við að fara á jólahlaðborð með vinnuni á laugardaginn og laufabrauð á sunnudaginn þannig að maður hlýtur að farað meiga hlusta á jólalög.

Ég var svo sniðug í dag. Ég fór út á plan og þreif bílinn minn, í 5 stiga frosti! Og núna gæti ég farið á skauta bara hérna útiSaklaus


Farin

22. nóvember 2007 klukkan 17:36
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
3 athugasemdir
31október

Já fínt, já sæll!

Verð bara að deila þessu með einhverjum....


Ég hlakka til jólana :):):):)
31. október 2007 klukkan 11:05
Ingibjörg Helga Sverrisdóttir
1 athugasemd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...